Litaafbrigði zebra finka
Zebra finkur geta haft hin ýmsu litaafbrigði og eru ný alltaf að koma í ljós.
Hér mun ég setja inn smátt og smátt helstu litaafbrigðin.
Nokkar af myndunum koma frá heimasíðunni www.efinch.com, sem er frábær síða, og er brot á höfundarétti að nota þær án leyfis frá Roy Beckham.

Normal Grey (NG) - Grár
Grátt par
Hið venjulega, eða algengasta útlit zebra finka er grár og finnast fuglarnir í náttúrunni í þessum lit.
Karlfuglinn: Líkaminn sjálfur er grár meðan kviðurinn er hvítur. Hann er með áberandi appelsínugular kinnar og svartar línur upp við þær sem liggja frá augunum. Á bringunni liggja svartar línur sem mynda svo þykkari svartann massa. Á hliðunum eru brúnleiðar fjaðrir með litlum hvítum doppum og loks er stélið röndótt, svart og hvítt. Karlfuglar eru með rauða gogga.
Kvenfuglinn: Líkaminn er alveg grár eins og á karlfuglinum og kviðurinn kvítur. Þær eru einnig með svarta línu frá augunum og röndótt stél. Goggurinn á kvenfuglum er appelsínugulur.
Ungar: Í hreiðrinu má þekkja ungana á dökkum líkama og svörtum goggi. Þegar þeir fá fjaðrir verða þeir alveg gráir og líkjast helst gráum kvenfugli.
Pied - Hvítir flekkir
Meðal pied ungi
Pied er litaafbrigði sem getur komið upp ásamt hvaða öðrum lit sem er. Þessi litur lýsir sér helst sem hvítir flekkir, en liturinn er óreglulegur og gerir einstaka fjaðrir hvítar. Ég tala yfirleitt um 4 stig af pied.
Lítið pied: Þá eru hvítu fjaðrirnar í minnihluta og sjást oftast á höfði, hálsi og vængjum.
Miðlungs pied: Um það bil helminguinn af fjöðrunum eru hvítar og oftast er það bakið sem heldur ennþá upprunalega litnum.
Mikið pied: Hér er hvíti liturinn í meirihluta og mjög lítið eða nánast ekki neitt eftir af upprunalega litnum. Skuggi er dæmi um mikið pied. Oft er einnig talað um "Saddleback" þegar fuglinn er alveg hvítur en bakið er ennþá með lit.
Pied White: Hér er talað um það að fuglinn er alveg hvítur þannig að enginn litur annar en hvítur sést lengur.
Ungar: Hægt er að sjá mjög snemma ef ungar eru pied, líkaminn er oft blanda af dökku og bleiku og þegar fjaðrirnar koma sjást greinilega hvítar fjaðrir inn á milli t.d. grárra fjaðra.
Berar: Þeir fuglar sem bera litinn með sér sýna oft eina og eina hvíta fjöður t.d. í væng, undir gogginum og í stéli. Hinsvegar þá sýna ekki allir fuglar einkenni og geta falið hvíta litinn alveg.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera litinn.

Black Cheek (BC) - Svartkinna
Vargs Númi, karlfugl í minni eigu.
Karlfugl: Karlfuglinn er eins og venjulegur grár fugl en í stað appelsínugulra kinna fær karlfuglinn svartar kinnar. Brúnu fjaðrirnar á hliðunum geta einnig orðið svartar eða verið í bland í brúna litinn.
Kvenfugl: Þetta er ein af þeim fáu litaafbrigðum þar sem kvenfuglar fá kinnar. Kvenfuglinn er alveg eins og hið gráa afbrigði en fá kinnar og stundum svartan lit í bringuna. Kinnarnar eru hinsvegar ekki alltaf jafn stórar og á karlfuglunum.
Ungar: Þegar ungarnir fá fjaðrir í hreiðrinu þá er strax hægt að sjá hvort þeir eru svartkinna eða ekki því þeir fá svartar kinnar strax.
Berar: Yfirleitt er hægt að sjá það á finkunum ef þær bera svarkinna litinn. Svörtu augnlínurnar verða þykkari og blæða stundum inn í kinnarnar. Kvenfuglar geta einnig fengið smá svartan lit í bringuna.
Það er mjög vinsælt að reyna að rækta þennan lit með ljósum litaafbrigðum eins og Lightback og Chestnut Flanked White, þar sem ljós liturinn á líkamanum gefur fallega andstæðu á móti svörtum kinnunum.

Black Face (BF) - Svart andlit
Karlfugl.
© Roy Beckham,
www.efinch.com
Karlfugl: Hvíti liturinn sem liggur milli augnlínunnar og goggsins verður alveg svört. Bringan á karlfuglinum verður einnig miklu dekkri og stærra og geta brúnu hliðarfjaðrirnar misst hvítu doppurnar. Stélið getur einnig verið svartara.
Kvenfugl: Það getur oft verið erfitt að greina það ef kvenfugl er Black Face. Hvíti liturinn við gogginn verður ekki svartur heldur grár, eins og líkami fuglsins. Stundum getur grái liturinn einnig náð lengra niður á maga og stélið verið dekkra.
Ungar: Yfirleitt sýna karlkyns ungar svarta litinn í andlitinu snemma.
Liturinn er ríkjandi - aðeins annað foreldrið þarf að bera litinn.

Black Breasted (BB) - Svartbringa
Karlfugl.
© Roy Beckham,
www.efinch.com
Karlfugl: Liturinn breytir útliti fuglsins töluvert. Kinnarnar stækka og ná oft alveg yfir augu og höfuð. Svarta augnröndin hverfur og verða brúnu fjaðrirnar oft með óreglulegri doppur. Svört bringan þéttist og verður svartari með minna af röndum. Rendurnar á stélfjörðunum hverfa og verður efsta fjörðin nánast alveg hvít. Hvítur og appelsínugulur litur getur einnig sést í vængjunum.
Kvenfugl: Kvenfuglarnir eru ekki eins áberandi á litinn, þær missa augnlínuna og eru með hvítt stél eins og karlfuglinn. Þær geta einnig verið með hvítan eða appeslínugulann lit í vængjunum.
Ungar: Það má þekkja þá á hvítu stélinu og oft smá appelsínugulum lit í kinnum og vængjum.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.

Orange Breasted (OB) - Appelsínugul bringa
Karlfugl.
© Roy Beckham,
www.efinch.com
Það sem þessi litur gerir er að breyta venjulegum svörtum lit í appelsínugulan. Bringuna, augnlínan og stélið. Augnlínan og stélið breytist líka hjá kvenfuglunum en virðast oft vera án augnlínu.
Það vantar oft augnlínu á ungana og getur sést appelsínugult í stélinu og má þekkja þá þannig.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Það vantar oft augnlínu á ungana og getur sést appelsínugult í stélinu og má þekkja þá þannig.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Lightback (LB) - Ljósbakur
Vargs Írena, Lightback kvenfugl.
Þessi litur er mjög líkur venjulega gráa litnum og haldast fuglarnir nokkurn vegin eins. Munurinn er að karlfuglinn verður ljósgrár á bakinu, kinnaliturinn verður ljós appelsínugulur og einnig hliðarflekkirnir og maginn verður alveg hvítur. Kvenfuglarnir verða silfurgráir einnig og með hvítan maga. Allur svartur litur heldur sínum styrk hjá fuglunum. Ungarnir eru greinilega ljósari í hreiðrinu, bæði fiðrið og goggurinn.
Þessi litur er mjög vinsæll að para við Black Cheek.
Liturinn erfist eftir kynjum (Sex-Linked).

Fawn - Brúnn
Fawn ungfugl frá Vargs ræktun.
Fawn er frekar svipaður litur og venjulegi grái. Grái liturinn á fuglunum verður hinsvegar ljósbrúnn en brúni liturinn getur verið mismikill eftir fuglunum. Allur svartur litur í fuglunum verður dökk brúnn í stað svarts. Maginn getur verið hvítur eða brúnleitur. Ungar eru ljósleitir með brúnleita gogga og liturinn sést strax greinilega þegar fjaðrirnar koma.
Liturinn erfist eftir kynjum (Sex-Linked).
Liturinn erfist eftir kynjum (Sex-Linked).
White - Hvítur
Hvítur karl og CFW stelpa frá Vargs ræktun.
Fuglarnir eru alhvítir. Þekkja má muninn á kynjunum á mismunandi gogglit þar sem karlfuglarnir eru með rauðan en kvenfuglarnir appelsínugulan, og karlfuglarnir syngja. Sumir fuglar sem eru hvítir eru í raun og veru pied, en ekki er hægt að sjá það nema með varpi.
Ungarnir eru fyrst bleikir með ljósa gogga en fá svo hvítar fjaðrir.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Ungarnir eru fyrst bleikir með ljósa gogga en fá svo hvítar fjaðrir.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Chestnut Flanked White (CFW)
Kvenfugl frá Vargs ræktun
Það eru tvær tegundir af þessum lit. Það má kalla ljósara (regular) og dekkra (continental) afbrigði.
Ljósara afbrigðið gerir það að verkum að fuglarnir eru með hvítan líkama en augnlínur, kinnar, hliðarfjaðrir og bringa haldast á karlfuglunum. Allt verður hinsvegar miklu ljósara, kinnarnar meira kremlitaðar, bringan grárri og stélið einnig. Kvenfuglarnir eru alveg hvítir nema með augnlínu og rendur á stélinu.
Ungarnir eru dökkir á lit eins og gráir ungar og sést ekki réttur litur fyrr en þau fá fjaðrir.
Dekkra litaafbrigðið lýsir sér eins hið fyrra en allur litur er sterkari og haldast rendurnar á stélinu, bringu og svo framvegis svart eða dökkt eins og á gráum fuglum. Bakið á þeim er hinsvegar meira kremað en hvítt og eru fuglarnir með rauð augu.
Ungarnir eru alveg bleikir þegar þeir koma úr eggjunum með rauð augu og fá svo hvítar fjaðrir.

Penguin
Karl og kvenfugl.
© Roy Beckham,
www.efinch.com
Þetta litaafbrigði minkar allan gráan og svartan lit. Augnröndin hverfur og svört bringa karlfuglsins einnig. Bakið er oft ljósara og með hvítan lit í sumum fjöðrum og stéli. Maginn er einstaklega hvítur. Kvenfuglinn er eins og karlfuglinn en auðvitað án kinna og hliðarlits.
Ungar hinsvegar líta nánast út eins og venjulegir gráir ungar og sést aðeins smá hvítt í stélinu þar til þeir fá fullorðinsfjaðrirnar.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Ungar hinsvegar líta nánast út eins og venjulegir gráir ungar og sést aðeins smá hvítt í stélinu þar til þeir fá fullorðinsfjaðrirnar.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Silver - Silfur
Karlfugl (ríkjandi).
© Roy Beckham, www.efinch.com
Til eru tvær tegundir af silfruðum fuglum. Víkjandi og ríkjandi.
Víkjandi liturinn gerir það að verkum að grár og svartur litur lýsist upp og verður ljóssilfraður. Þannig að liturinn í rauninni deyfir aðeins allan lit, en kinnar og hliðarfjaðrir karlfugla haldast óbreyttar. Ungarnir verða strax mjög líkir kvenfuglunum, ljóssilfraðir.
Liturinn er víkjandi - báðir foreldrar þurfa að bera það svo að það sjáist í afkvæmum.
Ríkjandi liturinn lýsir upp allan fuglinn en er styrkleikinn mjög mismunandi. Þeir verða mjög fallega silfurlitaðir. En t.d. kinnarnar á karlfuglunum geta verið allt frá appelsínugulum niður í hvítan lit. Ungarnir eru strax silfurlitaðir og eru með ljósbrúnan gogg.
Liturinn er ríkjandi - annað foreldrið þarf að hafa litinn svo hann sjáist í afkvæmum.

Isabel (EI)
Vargs Funi, karlfugl í minni eigu.
Til eru tvær tegundir af isabel litnum. Vanalega þekkt sem fawn isabel og grey isabel.
Isabel liturinn er vanalega ljós, getur verið frá því að vera nánast hvítur niður í nokkuð brún-gráan lit.
Allur svartur litur dofnar og verður ljós grár en appelsínuguli liturinn heldur sér áfram í fullum styrk. Einnig er algengt að fjaðirnar á isabel fuglum séu með "lacing" eða hálfgert ljósara munstur, sérstaklega á vængjunum.
Í hreiðri má sjá að ungarnir eru ljósir á lit, minna nokkuð á fawn unga, með ljósari gogg og fjaðrir. Stundum er hægt að sjá strax að það sé um isabel að ræða en stundum kemur það ekki greinilega fram fyrr en með fullorðinsfjöðrunum.
Liturinn er víkjandi og þurfa því báðir foreldrar að bera genið.