Varp
Mælt er með því að fuglarnir séu orðnir 6-9 mánaða gamlir áður en það er farið að leyfa þeim að verpa. Sumar finkur byrja sjálfar en mínar fóru ekki að pæla í þessu fyrr en ég setti hreiður inn til þeirra og hreiðurefni. Þá fóru þau að dúlla sér við að raða í hreiðrið, ég keypti efni hjá honum Tjörva en þeim finnst líka gott að nota niðurrifnar eldhúsrúllur. Þau eiga það líka til að troða öllum fjandanum í hreiðrið, þar á meðal mat.
Maður verður ef til vill var við að fuglarnir séu að para sig, en þá breytast hljóðin í þeim og kallinn fer uppá konuna í nokkra stund. Þetta varir aðeins í nokkrar sekúndur. Nokkrum dögum seinna er mjög sennilegt að fyrsta eggið komi. Ég lenti í því að finkan mín verpti á gólfið en ég setti það upp í hreiðrið og þá fattaði hún að verpa hinum eggjunum þar. Það koma um það bil eitt egg á dag þar til hún klárar þetta varp. Algengast er að fá um 3-6 egg en þau geta verið færri eða fleiri. Finkurnar byrja að liggja á eggjunum í kringum 3 eggið eða þess vegna ekki fyrr en öll eru komin.
Hægt er að sjá hvort að eggin séu frjóvguð með því að nota lítið vasaljós eða halda þeim upp við ljós. Best er að þvo sér vel um hendurnar áður eða nota hanska eða pappír til að halda á eggjunum, ef það er um opið hreiður að ræða þá dugar að lýsa eggin upp í hreiðrinu. Ef eggið er frjóvgað má sjá litlar æðar og rauð/gulleitt egg og jafnvel hjartslátt. Hérna eru frábærar myndir af ‚egg candling' eins og þetta kallast, reyndar ekki zebra finkur en það sést það sama. http://www.finchforum.com/viewtopic.php?f=5&t=8295
Ef eigandi er með par en óskar ekki eftir ungum, skal ekki gefa fuglunum hreiður og fjarlægja öll egg sem gætu komið.

Ungar
Um 12-15 dögum eftir að finkurnar byrjuðu að liggja á má búast við ungum. Það getur tekið aðeins lengri tíma en ef það er liðið meira en 20 dagar má búast við því að eggin séu ófrjóvguð eða ungarnir hafi dáið í eggjunum.
Ungarnir sem koma út eru mjög litlir og bleikir með smá fiðurkusk hér og þar. Þeir klekjast ekki endilega út allir á sama degi og foreldrarnir liggja ennþá á þeim og öðrum eggjum til að halda á þeim hita. Þeir eru blindir og gera lítið annað en að biðja um mat og sofa. Fyrstu 1-2 dagana lifa þeir á forða úr egginu þannig ef foreldrarnir byrja ekki að gefa þeim strax þarf ekki að hafa áhyggjur. Brátt fer að heyrast tíst frá þeim þar sem þeir biðja um mat. Það er því mikilvægt að hafa nóg af mat í búrinu.
Eftir viku eða svo fara ungarnir að fá fjaðrir og augun fara að opnast. Þær fara að líkjast ungum meira en halda sig enn í hreiðrinu þó að þeir fara að skoða sig aðeins meira um.
Þegar þeir eru orðnir um 3 viku gamlir þá fara þeir að yfirgefa hreiðrið og skoða umhverfið í kring. Þeir byrja að læra að sitja á prikunum í búrinu og fljúga þó að það geti tekið nokkra daga. Ungarnir eru vanalega mjög gæfir á þessu tímabili, sennilega af því að þeir vita ekki betur. Þeir læra af foreldrum sínum en þurfa samt enn að fá mat frá þeim.
Vikur seinna eða svo þegar þeir eru um mánaða gamlir fara þeir að borða sjálfir. Þeir eru orðnir nokkuð sjálfstæðir og má færa þá úr búri foreldrana þó að það megi bíða í 1-2 vikur. Gott er að taka hreiðrið út til að fá ekki annað varp strax aftur. Brátt fara ungafjaðrirnar að víkja fyrir fullorðinslitunum.
Það þarf svo að taka ungana frá foreldrunum og setja í búr eftir kyni, þar sem systkini og þess vegna foreldrar og ungar gæti farið að parast og það virkar ekki meðal þessara fugla. Það myndi bara enda með eggja og ungadauða.
Þá er alltaf hægt að halda ungunum, gefa þá, selja þá eða selja dýrabúðum.